fimmtudagur, apríl 06, 2006

Fyrir utan það að hafa ekki komist á Deus tónleikana í kvöld:(...þá er nú annars margt skemmtilegt búið að ganga upp hjá mér síðustu daga:)

Keypti mér miða til köben...byrja á að fara á Hróa:) Svo næst þar á eftir vikuferð til Berlín og heimsókn til Svíþjóðar...aftur köben svo heim í enda júlí. Sem sagt verð í útlandinu að skemmta mér í heilan mánuð;) Get ekki beðið eftir að komast út, væri helst til í að geta farið einu sinni í mánuði einhvað út. Held að næsta stopp verði að vera í gamla heimalandinu mínu USA...sem verður vonandi einhvern tíman bráðlega:)

Svo er óvissuferðin öll að koma til:) Fékk grænt ljós í kvöld um einn hlutinn sem ég var búin að vera reyna redda;) En nú er bara að tékka á fólkinu hvort það sé laust þennan dag...daga....hummmm:)

Í dag fékk ég líka ótrúlega flotta óvænta gjöf:) Límiði með henni Emily minni til að setja á Shmee minn (bíllinn minn). Verðið endilega að tékka á miðanum næst þegar ég bíð ykkur á rúntinn:) Og ýkt skemmtilega lyklakippu með:) Takk takk takk fyrir mig:)

Helgin:
Einu plönin mín so far eru að ...
hlaupa út í skífu á morgun og kaupa eitt stykki á tónleikana 6.mai:)

Hitta vinkonu mína og prenta á bol sem ég er að fara gefa....

fá mér kaldan bjór.

Fara í ammæli!

ekki vera þunn.

vera bara í góðu skapi:o)

Gera aðra tilraun í þynnkuborgara og ná að klára hann:)

hitta kærastann, segji svona...eða hvað...hmmm

Verði helgin ykkar sem allra skrítnust,sjáumzt!!!:P

p.s. 3 bönd sem ég hélt að myndu koma til greina að vinna 1 sæti í músiktilraunum, voru í 1, 2 og 3 sæti. Og ég tek það framm að ég dæmndi bara á myndum þar sem ég missti af musikt. Spurning hvort maður sé jafn heppin í ´lottó..kannski maður taki bara þátt...neee..veit ekki....

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Líst geðveikt vel á ferðaplönin þín...þetta verður bara gaman. Væri til að fara á Hróa með þér en það verður kannski bara næst. En hey ég fæ að fara til Berlínar eins og þú og hlakka mikið til. P.S búin að kaupa mér miða á 6 maí. Langar líka geðveikt á vorblótið í apríl uhmmm held að það verði bara stuð ;)Og Deus voru plús fimm stjörnur verða bara flottari með aldrinum

07 apríl, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Úpp gleymdi að setja nafni mitt við

07 apríl, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

oohhh hefði viljað sjá Deus...en bara næst:)
já mér fynnst að þú ættir bara að skella þér með okkur á Hróa!:)
fá okkur sushi á staðnum Tokyo í köben og ristaðar netur á strikinu í eftir rétt...nammmmiii:P

10 apríl, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Ohh hvað mig langar í sushi...og ristaðar hnetur uhmm svo góður ilmur af þeim. Það væri líka alveg toppur á tilverunni að fá sér vöfflu á strikinu með smá ís uhmmmmm

10 apríl, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home